MAX

Í bláum skugga...

24.10.2006 13:59:32 / nikita

Blogg hér aftur?

Er ekki viss hvort ég eigi að endurvekja þetta blogg hérna. Fór að velta því fyrir mér þar sem hér eru komnir margir nýjir kúl fídusar - en er enn ekki að digga allar þessar auglýsingar.....

...We'll see we'll see


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 02:44:34 / nikita

Nýtt blogg líka

já hef ákveðið að flytja bloggið mitt yfir á 123, hér er linkurinn:

http://www.123.is/maggamax/


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 01:49:21 / nikita

My space

Jújú, kjella er komin með my space:

http://www.myspace.com/maggaelin

Tékk it

Líka linkur þarna e-r staðar


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 01:29:17 / nikita

Brandari dagsins

Það voru einu sinni úlfur, ljón og önd að tala saman og metast sín á milli.
Úlfurinn sagði: "þegar ég urrrra, þá skjálfa öll smádýrin í skóginum"!!!!!
Þá sagði ljónið: "þegar ég öskra þá skelfur allur skógurinn!!!"
Þá sagði öndin: "isssss...... það er ekkert.... ef ég hnerra þá skelfur öll heimsbyggðin!!!"
 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 02:22:24 / nikita

Nýtt blogg...

... í vinnslu.....verður tilbúið vonandi á morgun...

Málið er að ég get ekki sett myndir inn í færslurnar á þessari bloggsíðu - en það er alveg ekkert mál fyrir Jón Pál á þessari nýju sem er hóstuð af blogdrive...

Bíðið spennt og frekar glennt....


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 21:21:51 / nikita

Aaaaalveg að verða búið....

...já það er búið að skila missó, búin að fá einkunnir - gekk vel, náði öllu - fínar einkunnir að mestu!!!

Nú er bara eftir málsvörn og viðvera - og þá er 1. árið BÚIÐ BÚIÐ BÚIÐ BÚIÐ :haha:

Vá hvað ég var í flippuðu missóhóp hahahahahaha En ég vann stunuváhvaðþettaergóðpizza keppnina - Valgeir chicken!!!

Úlli hökumaður toppaði þetta nú samt alveg verð ég að segja - já og hann heitir EKKI Jón :lol:

Sveinn - PLÍS viltu sofa hjá mér.....þó ég sé shallow :!:


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 12:26:34 / nikita

Lónelý missó

Já núna er að síga á síðari hluta fyrri missóviku.  Ég er frekar lonely akkúrat núna, en ég er all alone!!!  Ástæðan er skýr...nei það er ekki af því að ég er svo leiðinleg (vona ég allavega), það er jú föstudagur á Bifröst - sem þýðir einfaldlega eitt - það eru allir þunnir....lúllandi.  En Miss X (dregið af því að ég er í misserishóp X) er ekkert þunn í dag, enda fór hún ekki á djammið í gær, heldur sat heima og las og horfði á Harry Potter (í 7.skiptið).  Það var þó ekki mikið um svefn sökum hávaða...já og FLUGELDA, og ekki er þetta í fyrsta sinn sem flugeldum er skotið á loft um miðjar nætur - ekki um áramót - hér í Norðurárdalnum.

En back to missó - lesa meira um líkamstjón hehe - ekki leiðinlegt ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 19:29:00 / nikita

Hver giskaði á undir 6......

.....:evil:

Prófin eru BÚIN :haha:  Já og svo próflokadjammið reyndar líka.....emmm.... að mig minnir :lol:  Já prófin gengu bara vel að ég held, kemur í ljós eftir 2 vikur, en þangað til þá ætla ég bara að vera  nokkuð ánægð með frammistöðu mína, þar til annað kemur í ljós......

Próflokadjammið var, úff, já bara eins og við var að búast miðað við síðasta próflokadjamm......Það var bjór, það var vín, það var söngur, það var svín, það voru skot, það var gítar, það var pot, það var píanó, það var dans, það var háhestur, það var kynlíf, það voru slagsmál, það voru dettingar, það var blóð, það var slóð, en fyrst og fremst, það var stuð, gleði og gaman...!!! :haha:

Myndir koma inn á þriðjudaginn.....fylgist spennt með.....


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 00:56:16 / nikita

Jú ég er að lesa fyrir próf

You Are a Rainbow

Breathtaking and rare
You are totally enchanting and intriguing 
But you usually don't stick around long!

You are best known for: your beauty

Your dominant state: seducing




» 1 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 23:17:04 / nikita

Ég bara verð að deila þessu með ykkur...

....þetta komment fann ég á bloggsíðu ungs skólafélaga míns eftir færslu þar sem hann hafði verið að blóta því að standa í röð:

Ég var í röð, ég var númer tvö, það var gaman. mér finnst gaman í röð, þá stendur maður þétt uppvið stelpur, mér finnst gott að standa þétt uppvið stelpur, stelpur eru mjúkar, stelpur lykta vel, stelpur eru fallegar, mér finnst gaman í röð, í röð er maður að bíða eftir einhverju, mér finnst gaman að bíða eftir einhverju, stundum er það gott, stundum er það vont, einusinni var ég í vitlausri röð, það var samt gaman.

Já sumir eru bilaðri en aðrir, hahahaha


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 19:17:08 / nikita

Úr - slit

Já úrslitin mætt á svæðið, og það var ágætt að sjá að mikill meiri hluti trúði því staðfastlega að ég myndi standa mig í prógrömmunum, þó að ástæðurnar væru misjafnar hehe......en allavega þá er komin ný skoðanakönnun....KJÓSA - RÉTT - XD


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.03.2006 20:30:52 / nikita

Prófin prófin allstaðar...

...með prófagleði og tafirnar....

Já það eru prófin, á Bifrastareyju.....

Nei nei, ekki um prófin....

Nú á ég prófin með þér..(addÝ)....

Skyld' hún vera prófamóð....

Í dag, prófin er'að koma...

...og ég leita að bók handa þér...

Leiðinda bækur, les ég heima, tek svo prófin, ef ég nenni...

Lestu nú bók með mér, að eilífu, segðu að þetta sé að verða búið, þá mega prófin fara...

Prófin falla, á allt og alla, fólk að lesa og vak'í nótt, bara ef prófin vær'að verða búin, ó hve gaman, væri þá.... Vinir hittast og halda partý, drekka góðan og vænan bjór, dansa saman, fagna próflokum, syngja saman og fá sér ópal skot....

Já og hmmmm, við skulum ss vona að prófin séu að verða búin því að ég er bersýnilega alveg að tapa mér.... :$


» 11 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 20:40:00 / nikita

Snillingur

Eins og þið hafið væntanlega tekið eftir börnin góð þá er komin mynd af mér í header á síðunni......þar sést greinilega hvers konar snillingur er hér á ferð, því jú mér tókst að koma allri myndinni fyrir og rúmlega það....ég sést bara alveg öll....

Próf og próf og aftur...próf......Prófin eru semsagt á næsta leyti og er það vægt til orða tekið, en ég byrja í fyrsta prófinu á laugardagsmorgun kl. 8:50 :cry:  Hvað er það, og ekki minna próf heldur en munnlegt próf í almennri lögfræði 2.....:^)

Þannig að búast má við því að ég verði duglegri að blogga næstu 10 dagana eða svo þar sem ég á að vera að study hard, þá bloggar maður þeim mun meira, jíha!!!

....hver segir að það sé ekki gaman að vera í skóla.....


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 16:24:14 / nikita

Myndir frá Bifróvision 2006 eru mættar...

...niður - vinstri

» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11